Jólahald í Setbergsskóla

16.12.2020

Jólahald er með breyttu sniði þetta árið eins og gefur að skilja. Nemendur og starfsfólk hafa gert sér ýmislegt til tilbreytingar og skemmtunar á aðventunni og jólaandi ríkt í skólanum. Auk jólaföndurs, bæjar- og kirkjuferða, jólasöngs, lesturs bóka, rafrænna rithöfundaheimsókna og hinnar árlegu jólahurðasamkeppni, svo eitthvað sé nefnt, höfum við haldið aðventustund í öllum bekkjum þar sem nemendur hafa gætt sér á kakói og smákökum og allir hafa tekið þátt í piparkökumálun sem foreldrafélagið stóð fyrir. Við þökkum þeirra framlag til skólastarfsins.

Í stað hefðbundinna jólaskemmtana verða í þetta sinn hátíðleg stofujól í öllum árgöngum. Skipulagið á fimmtudag og föstudag verður með þessum hætti:

  • Fimmtudaginn 17. desember mæta unglingar samkvæmt stundatöflu. Stofujólin þeirra verða svo kl. 19:30 – 21:30 og eru nemendur unglingadeildar þar með komnir í jólaleyfi.
  • Föstudaginn 18. desember mæta nemendur í 5. – 7. bekk á stofujól kl. 9:00 – 10:30. Allir mæta í sína heimastofu.
  • Föstudaginn 18. desember mæta nemendur 1. – 4. bekkja á stofujól kl. 9:00 – 11:00. Allir mæta í sína heimastofu. Hver árgangur fyrir sig mun svo koma saman á sal og dansa kringum jólatréð. Þennan dag verður boðið upp á morgungæslu frá kl. 7:30 og frístund tekur við fyrir þau börn sem þar eru skráð.

Föstudagur 18. desember er síðasti skóladagur fyrir jól hjá 1. – 7. bekk.

Skólastarf hefst aftur mánudaginn 4. janúar 2021 samkvæmt skipulagi sem sent verður í sérstökum pósti á föstudag en nú er unnið að því að leggja lokahönd á það skipulag.

Starfsfólk Setbergsskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla, árs og friðar.

Megið þið njóta jólahátíðarinnar sem allra best og eiga notalegar stundir í ykkar jólakúlu.

Jolakulur-300-x-150-x-72


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is