Bekkjatenglar

Starfsreglur fyrirr bekkjatengla

Í hverjum bekk eru kosnir tveir til þrír bekkjatenglar.

  • Hlutverk bekkjatengla er að efla og styrkja samstarf foreldra/forráðamanna og nemenda auk þess að leitast við að treysta samband heimila og skóla.
  • Bekkjatenglar eru tengiliðir á milli umsjónarkennara og foreldra.
  • Stefnt skal að því að halda tvo (eða fleiri) viðburði yfir veturinn. Mælt er með því að hafa  þann fyrri í október/nóvember og þann seinni í febrúar/mars
  • Æskilegt er að nemendur séu hafðir með í ráðum þegar bekkjarstarf er skipulagt.
  • Bekkjatenglar vinna saman við skipulag viðburða hjá árganginum. 
  • Bekkjatenglar eru tengiliðir árgangs við Foreldrafélag Setbergsskóla
  • Bekkjatenglar aðstoða kennara við að skipuleggja þátttöku foreldra í skólastarfinu eftir því sem við á, t.d. í tengslum við vettvangsferðir, starfskynningar og heimsóknir foreldra í árganginn.
  • Foreldrafélagið fær aðstoð frá bekkjatenglum við framkvæmd einstakra stærri viðburða á vegum þess, t.d. jólaföndur, páskabingó og vorhátíð.
  • Bekkjatenglar sjá um skilaboð komist til allra innan árgangs t.d. vegna viðburða og fræðslufunda.
  • Bekkjatenglar gæta þess að hafa velferð nemenda, foreldra og kennara að leiðarljósi í skólastarfinu og virða trúnað um persónulega hagi nemenda og foreldra.

Útlán skólahúsnæðis til bekkjatengla

Hvað geri ég ef ég ætla að nýta húsnæði skólans fyrir skemmtun?

  • Sendir póst til skrifstofustjóra hallab@setbergsskoli.is og húsumsjónarmanns hafsteinn@hafnarfjordur.is sem halda utan um skráningar á pöntunum á húsnæði skólans.
  • Mikilvægt er að taka húsnæði frá tímanlega þar sem oft þarf að gera ráðstafanir vegna þrifa og til að forðast árekstra.
  • Húsumsjónarmaður opnar og lokar húsnæði eftir samkomulagi við þá sem halda skemmtunina.
  • Sá sem óskar eftir að fá húsnæðið að láni ber ábyrgð á að skila því í góðu ásigkomulagi að lokinni notkun og gæta þess að gluggar og hurðir séu lokaðar. 

Foreldrafulltrúar 2022 -2023

Bekkur               Foreldri 

1.bekkur           Arnar Hólm Kristjánsson, Guðrún Halla Þorvarðardóttir, Unnur Hjartardóttir og                                                         

2.bekkur           Hilmir Heiðar Lundevik, Karen Emilsdóttir, Ástrós Signýjardóttir, Hugi Halldórsson, Anna                                              Albertsdóttir og Þóra Ívarsdóttir

4. bekkur          Berglind Rún Torfadóttir Benedikt Guðmundsson, Laufey Birna Ómarsdóttir                                                                  og Elísa Berglind Ægisdóttir

5. bekkur          Benedikt Guðmundsson, Laufey Birna Ómarsdóttir og Elísa Berglind Ægisdóttir

6.bekkur           Silja Úlfarsdóttir, Lilja Helgadóttir, Rannveig Klara Matthíasdóttir, Sólveig Ólafsdóttir,                                                    Eva Albrechtsen og Hrefna Ásmundsdóttir

7. ALÞ               Elín Högnadóttir og Íris Dögg Jónsdóttir                        

7.HD                  Gerður Rún Einarsdóttir og Hulda Júlíana Jónsdóttir       

8.bekkur            Sara Pálsdóttir, Helga Björt Ingadóttir, Eva Albrechtsen og Hulda Karen   

9.bekkur

10.bekkur          Erla María Gísladóttir,   Ólafur, Rut Garðarsdóttir og Sigrún   

Uppfært: 14.12.2022                                                                    


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is