Heilsugæsla
Hjúkrunarfræðingur og heilsugæsla
Skólaheilsugæsla
Setbergsskóla er á vegum heilsugæslunnar Sólvangi. Hjúkrunarfræðingar eru Guðrún
Jónsdóttir og Jóhanna Helga Þorsteinsdóttir.
Viðvera hjúkrunarfræðings á haustönn 2020 í Setbergsskóla,
- Mánudagar 8 - 12:45
- Þriðjudagar 8 - 13:45
- Miðvikudagar 8 - 14/16 á víxl
- Fimmtudagar 8 - 12
- Föstudagar 8 - 12
Markmið heilsuverndar skólabarna er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsemi hennar er samkvæmt lögum, reglugerðum og tilmælum Landlæknis. Í henni felast skimanir, viðtöl um lífsstíl og líðan, bólusetningar og heilbrigðisfræðsla, ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans. Nánari upplýsingar um starfsemi skólaheilsugæslunnar má nálgast hér: Skólaheilsugæslan og verksvið hennar
Starfsfólk skólaheilsugæslu vinnur í samvinnu við foreldra/ forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem veita nemendum þjónustu. Starfsfólk heilsugæslunnar er bundið þagnarskyldu.
Skólahjúkrunarfræðingur, kennari eða skólaliði veita fyrstu hjálp ef slys ber að höndum. Ef barn veikist í skólanum eða meiðist alvarlega er haft samband við forráðamenn.
Netfang skólaheilsugæslu er setbergsskoli@heilsugaeslan.is.
Einnig er hægt að hafa samband við hjúkrunarfræðing í síma skólans 565-1011.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla