Samrómur - Lestrarkeppni grunnskólanna

18.1.2021

Í dag hefst Lestrarkeppni grunnskólanna á vegum Samróms
Forseti Íslands setur keppnina í beinu streymi frá Facebooksíðu Samróms kl. 15.

Við í Setbergsskóla ætlum að taka þátt, enda málefnið gott og verðlaunin vegleg, þrjár Sphero kúlur sem eru vélmenni. Allir sem koma að skólanum er hvattir til að taka þátt ásamt nemendum; starfsfólk og fjölskyldur barnanna. Börn undir 18 ára þurfa samþykki foreldra til innskráningar.

Samrómur - heimasíða
Slóð á leiðbeiningar
Slóð á kennslumyndskeið
Hér er frétt RÚV frá því í fyrra þar sem nemendur og kennarar útskýra tilgang og þáttöku í keppninni. 

Á síðu samróms segir um tilgang verkefnisins:

Á síðstu árum hefur verið bylting í raddtækni og því hvernig við notum röddina til þess að stjórna tækninni. Íslenskan á undir högg að sækja vegna þeirra öru tæknibreytinga en mörg okkar eiga nú þegar samskipti við tölvur og ýmis tæki á erlendu máli. Fólk mun nota röddina í auknum mæli til að stýra hvers kyns tækjum og tólum en vandinn er sá að tækin skilja ekki íslensku. Þess vegna er mikilvægt að missa ekki af lestinni og nú er hafin vinna við stórt samstarfsverkefni til þess að gera íslensku gjaldgenga í tölvum og tækjum. Að því koma íslenskir háskólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök, sem munu á næstu árum þróa nauðsynlega innviði fyrir hugbúnað sem skilur og talar íslensku. Samrómur verður hluti af þessu verkefni, opið gagnasafn raddsýna fyrir íslensku sem hver sem getur notað til þess að þróa sínar máltæknilausnir. Með þessu tryggjum við öryggi íslenskunnar á stafrænum tímum.

Búið er að koma fyrir skjá í skólanum þar sem við munum fylgjast spennt með.


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is