Kynning á námsframboði framhaldsskólanna á höfuðborgarsvæðinu.
Þriðjudaginn 6. febrúar milli kl. 17.00 til 18.30 verður kynning á námsframboði framhaldsskólanna á Höfuðborgarsvæðinu í Flensborgarskóla.
Kynningin er ætluð nemendum úr efstu bekkjum grunnskóla og foreldrum þeirra.
Fulltrúar frá skólunum verða með kynningarbása í aðalsal skólans.
Við vonumst til að sjá sem flesta nemendur og foreldra úr Setbergsskóla.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla