Bleikur dagur, föstudaginn 14. október

13.10.2016

Kæru foreldrar og forráðamenn
Í október stendur Krabbameinsfélags Íslands fyrir fjáröflun gegn krabbameini hjá konum og er október mánuður Bleiku slaufunnar. Af því tilefni biðjum við alla í Setbergsskóla (starfsfólk og nemendur) að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 14. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni.

Stöndum saman, mætum öll í bleiku á föstudaginn og tökum þátt í þessu átaki.

Bleikur október á bókasafni skólans:

 


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is