Fundur fyrir foreldra og forráðamenn barna sem hefja skólagöngu í 1. bekk á komandi skólaári

7.6.2016

Kæru foreldrar og forráðamenn barna sem hefja skólagöngu í 1. bekk Setbergsskóla á komandi skólaári.

Við bjóðum ykkur til fundar föstudaginn 10. júní klukkan 8:30-9:30. Fundurinn verður haldinn í sal Setbergsskóla. Vinsamlegast gangið inn um aðalandyri skólans.

Tilgangur fundarins er að kynna skólastarfið sem framundan er, afhenda bækling um skólabyrjun og fara yfir ýmis hagnýt atriði sem snerta upphaf skólagöngu barnanna.

Þeim sem þess óska gefst tækifæri til að skoða skólann að fundi loknum.

Hlökkum til að hitta ykkur.

Með kveðju,

skólastjórnendur Setbergsskóla



Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is