Mamma Mia - Setbergsskóla

26.4.2023

Loksins er komið að þessu! 10.bekkur Setbergsskóla frumsýnir nýja uppsetningu af stórsöngleiknum Mamma Mia eftir Catherine Johnson og byggður á lögum sænsku hljómsveitarinnar ABBA sem að flestir þekkja eftir sigur þeirra fjórmenninga í Eurovision árið 1974 með laginu Waterloo.

Í Mamma Mia kynnumst við Sophie Sheridan sem er við það að fara að gifta sig. En áður en hún gerir það þarf hún að leysa úr mestu ráðgátu sem hefur herjað á hana: spurninguna um hver er pabbi hennar. Það er þó hægara sagt en gert enda koma 3 til greina! Eftir miklar vangaveltur, rifrildi, spennu, gleði og sorg tekur sagan þó óvænta stefnu sem enginn sá fyrir.

Leikstjórn söngleiksins er í höndum Guðrúnar Heiðu Sigurgeirsdóttur og Maríu Gunnarsdóttur. Unnið er eftir þýðingu Þórunnar Ernu Clausen. Aðstoðarleikstjóri er Jóna Sigríður Gunnarsdóttir en allir nemendur og foreldrar nemenda í 10.bekk Setbergsskóla koma á einn eða annan þátt að verkefninu og má m.a. sjá dugnaðinn í glæsilegri leikmynd og framúrskarandi leik.

Hægt er að nálgast miða hér: Mamma Mía - Setbergsskóla 

Nemendur hafa verið duglegir að deila myndum og myndböndum af ferlinu á samfélagsmiðla eins og hægt er að sjá hér:

Facebook

https://www.facebook.com/profile.php?id=100063790730983

Instagram

https://www.instagram.com/mammamiaseto/

tiktok

https://www.tiktok.com/@songleikurseto/video/7226026331824311578

Plagg



Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is