Vetrarfrí
Ágæru foreldrar og forráðamenn.
Fimmtudaginn og föstudaginn 22. - 23. október er vetrarfrí í grunnskólum Hafnarfjarðar. Við minnum á að Krakkaberg er einnig lokað þessa daga og frístundabíllinn fellur niður.
Með góðri kveðju og von um að þið njótið öll þeirra frídaga sem í vændum eru,
starfsfólk Setbergsskóla.