Vetrarfrí
Ágæru foreldrar og forráðamenn.
Mánudaginn og þriðjudaginn 21. - 22. október er vetrarfrí í grunnskólum Hafnarfjarðar. Við minnum á að Krakkaberg er einnig lokað þessa daga og frístundabíllinn fellur niður.
Venju samkvæmt verður frítt í sund í vetrarfríinu og menningarstofnanir standa fyrir fjölbreyttri dagskrá þessa daga og helgina á undan. Nánari upplýsingar um dagskrána er hægt að nálgast á meðfylgjandi tenglum á íslensku, ensku og pólsku.
Vetrarfrí - frítt í sund og fjölbreytt dagskrá menningarstofnana
Með góðri kveðju og von um að þið njótið öll þeirra frídaga sem í vændum eru,
starfsfólk Setbergsskóla.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla