Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðra verkfalla

6.3.2020

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Eins og kunnugt er hafa Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og BSRB boðað til verkfalla frá og með mánudeginum 9. mars. Ef til verkfalla kemur mun áhrifa þeirra gæta í skólastarfinu og biðjum við ykkur að lesa vel upplýsingar hér að neðan.  

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur boðað verkföll á fyrirfram ákveðnum dagsetningum; dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. mars, 26. mars, 31. mars og 1. apríl. Hafi samningar ekki tekist fyrir 15. apríl munu allir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum fara í ótímabundið allsherjarverkfall þar til samningar hafa tekist.

Um er að ræða um 660 starfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ sem flestir starfa innan grunnskóla sveitarfélagsins. Fyrirhugað verkfall nær m.a. til húsumsjónarmanna, ritara, skólaliða, frístunda- leiðbeinenda og stuðningsfulltrúa. Sérstök athygli er vakin á því að frístundaleiðbendur og starfsfólk frístundaheimila og félagsmiðstöðva mun frá og með mánudeginum 9. mars fara í ótímabundið verkfall sem þýðir að allt frístunda- og félagsstarf, fyrir og eftir skóla, fellur niður þar til samningar hafa tekist.

Áhrif á skólastarfið í Setbergsskóla – LESIST VEL

Ef til verkfalla kemur þá munu áhrif m.a. verða með eftirfarandi hætti:

Mánudagur 9. mars og þriðjudagur 10. mars
Allir nemendur í 1. – 7. bekk mæta í sínar heimastofur kl. 8:30 (en ekki í sund eða íþróttir). Kennsla stendur yfir í tvær kennslustundir eða frá kl. 8:30 – 9:50 þar sem starfsfólk á frímínútnavörslu er í verkfalli.

Allir nemendur í 8. – 10. bekk mæta til kennslu samkvæmt stundatöflu kl. 8:30 nema ef um íþróttir eða sund er að ræða en þá eiga þau að mæta í heimastofu (á við um 8. bekk á þriðjudagsmorgni ). Kennsla stendur yfir frá 8:30 og fram að matarhléi sem getur verið breytilegt milli bekkja en kennarar sjá um frímínútnavörslu í unglingadeild.

Þriðjudagur 10. mars: 9. LÖG mætir í samræmt próf kl. 8:30 og fer heim kl. 11:00 að prófi loknu.
Þriðjudagur 10. mars: 9. SK mætir í samræmt próf kl. 11:00 og fer heim 13:30 að prófi loknu.

Sérstaklega verður haft samband við foreldra barna í Bergi og annarra barna sem njóta stuðnings starfsmanna sem eru í verkfalli vegna skólasóknar þeirra þessa daga.

Ekki verður hægt að bjóða morgungæslu meðan á verkfalli stendur.

Hvorki verður boðið upp á hafragraut né hádegismat meðan á verkfalli stendur en nemendur í ávaxtaáskrift fá morgunávöxt.

Sundlaugar, íþróttahús og menningarstofnanir bæjarins. Sundlaugar, íþróttahús og menningarstofnanir bæjarins verða lokaðar á fyrirfram ákveðnum dagsetningum. Bókasafn Hafnarfjarðar verður opið frá kl. 10-17 með fyrirvara um skerta þjónustu.

Ótímabundið verkfall frá og með 9. mars, frístundaheimili og félagsmiðstöð.

Frístundaheimili verður lokað ótímabundið, bæði fyrir og eftir skóla, frá og með mánudeginum 9. mars. Ekki verður innheimt fyrir þjónustu sem fellur niður vegna verkfalls.
Félagsmiðstöð verður lokuð ótímabundið frá og með mánudeginum 9. mars
Foreldrar og forráðamenn eru, sem fyrr segir, hvattir til að fylgjast vel með fréttum því grunnskólarnir munu vera með eðlilega starfsemi ef verkfall verður slegið af.

Með góðri kveðju,
María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla.

Bréf til foreldra  


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is