Við komumst áfram í Veistu svarið

- spurningakeppni grunnskólanna í Hafnarfirði.

5.2.2021

Það var mikil spenna í fyrstu viðureign spurningakeppni grunnskólanna í Hafnarfirði, Veistu svarið. Keppnin var háð á netinu eins og margt annað þessa dagana.

Krakkarnir stóðu sig allir með prýði, en Setbersskóli var eitt af þeim liðum sem komust áfram. Við erum afar stolt af þeim. 

Það verða því stífar æfingar á næstunni fyrir næstu keppni sem fram fer þann 10. febrúar. 


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is