Bólusetning 12 – 15 ára barna

18.8.2021

Nú í ágúst verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára. Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning síðar í haust.

Börn á þessum aldri sem fengið hafa COVID-19 geta komið og fengið einn skammt ef meira en þrír mánuðir eru liðnir frá greiningu.

Upplýsingar um fyrirkomulag bólusetninga er að finna hér: 

https://www.heilsugaeslan.is/um-hh/frettasafn/stok-frett/2021/08/06/Bolusetning-12-15-ara-barna/


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is