Appelsínugul veðurviðvörun frá kl. 13:30 - 17:00 í dag

21.9.2021

Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá kl. 13:30 - 17:00 í dag þriðjudaginn 21. september 2021. 

Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístunda­starfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.

Sjá nánar HÉR


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is