Aflétt grímuskylda hjá 5.-7. bekk
Enn hafa verið boðaðar
breytingar á reglugerð sem snúa að starfi grunnskóla sökum nýrra
sóttvarnarreglna. Staðan er hins vegar óljós þar sem skólar hafa ekki fengið
staðfestar upplýsingar um í hverju breytingarnar felast.
Þess vegna hefur verið tekin sú ákvörðun að skólastarf í grunnskólum
Hafnarfjarðar frá miðvikudegi 18. nóvember og fram að helgi, verði óbreytt
frá því sem nú er. Þó hefur verið ákveðið að setja inn eina breytingu sem
sérstaklega hefur verið boðuð af sóttvarnalækni, þ.e. að aflétta grímuskylda
hjá nemendum og starfsfólki í 5.-7. bekkjum og gera hana valfrjálsa. Sömuleiðis
viljum við einnig benda á að akstur frístundabílsins frá frístundaheimilum á
íþróttaæfingar er EKKI hafinn svo þeir foreldrar sem eiga börn í 1.-4 bekk og
vilja senda börn sín á íþróttaæfingar í þessari viku verða sjálf að koma börnum
sínum á æfingar.
Þetta gildir uns nýjar breytingar á sóttvarnareglum verða komnar fram og
grunnskólarnir fengið tækifæri að koma þeim í framkvæmd. Þegar það verður ljóst
mun nýr póstur koma til ykkar um málið.
Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar.