Opnunartími og frímínútur

Opnunartími skólahúsnæðis, frímínútur og hádegishlé

Aðalanddyri skólans er opnað kl. 8:00. Önnur anddyri opna kl. 8:10. Skóla- og frístundaliðar hafa umsjón með nemendum þar til kennsla hefst. Anddyrum hjá 1. - 7. bekk er læst þegar kennsla hefst. Skóla- og frístundaliðar eru á vakt og fylgjast með anddyrunum eftir þann tíma og opna fyrir nemendum sem eru á ferðinni í og úr sundi og leikfimi. Ef foreldrar eru á ferðinni á skólatíma þá er aðalanddyri skólans opið. Því er læst kl. 15:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum kl. 14:00.

Morgunfrímínútur eru tvískiptar. 1. – 4. Bekkur ásamt unglingadeild eru í frímínútum kl. 9:50 – 10:10 en miðdeild kl. 10:10 – 10:30. Skóla- og frístundarliðar ásamt kennurum fara út í frímínútur með börnunum, þeir eru til taks ef eitthvað kemur upp á og aðstoða við leiki. Unglingadeildarnemendur hafa val um að vera inni í frímínútum.

Hádegishlé og frímínútur er 11:30 – 12:10 hjá 1.-7.bekk og kl. 12:10 – 12:50 hjá 8.-10.bekk. Skóla - og frístundarliðar ásamt kennurum taka þátt og aðstoða í matarhléum.

Reiknað er með að nemendur mæti stundvíslega í skólann.

Uppfært: 30.10.2023


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is