Nemendafélag Setbergsskóla

Nemendafélag Setbergsskóla

Samkvæmt lögum um grunnskóla (2008, 10. gr.) skal starfa nemendafélag við grunnskóla og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Nemendafélag vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Nemendafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.

Kynning og starfsreglur

Félagsstarf tómstundamiðstöðvanna er fyrir alla nemendur í 5. – 10. bekk grunnskólans og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Kosið er árlega í stjórn nemendafélags. Þeir sem eru í stjórn nemendafélags eru fyrirmynd annarra nemenda og tenging annarra nemenda við stjórnendur og starfsfólk skólans. Nemendafélag tekur tíma, þolinmæði, vinnu og ábyrgð. Þeir sem taka þátt í nemendafélagi öðlast félagslega hæfni og læra skipulagningu.

Það er hlutverk stjórnar nemendafélags að hvetja nemendur til þátttöku í félagsstörfum, miðla upplýsingum til samnemenda sinna, kynna bekkjarfélögum niðurstöðu funda og koma með athugasemdir og málefni inn á nemendaráðsfundi sem bekkjarfélagar þeirra leggja til. 

Verkefni nemendafélags (félagslífið)

Nemendafélagið hittist á fundum einu sinni í viku þar sem hin ýmsu mál er eru rædd. Nemendafélagið aðstoðar félagsmiðstöðina við hina ýmsu viðburði eins og til dæmis böll, árshátíð, söngkeppni og fleira.
Aðstoðin felur meðal annars í sér að hjálpa til við að gera allt tilbúið fyrir viðburði, finna skemmtiatriði/tónlistaratriði, frágangur eftir viðburði, stýra viðburðum, koma með hugmyndir og hvetja nemendur til þátttöku.

Formaður og varaformaður nemendafélagsins eru einnig í undirbúningsnefnd fyrir 221 festival og Grunnskólahátíðina.

Vinahópar og hópastarf gefur tækifæri fyrir krakka sem áhuga hafa á að styrkja sig með virkari þátttöku í félagsstarfinu okkar og gott tækifæri fyrir þau sem vilja efla félagsleg tengsl og færni.

Mikið er lagt upp úr því að vera í góðum samskiptum bæði við krakkana og foreldra/forráðamenn með því að auglýsa vel hvað er framundan hjá okkur og hafa allar upplýsingar aðgengilegar.

Upplýsingamiðlun – hægt er að finna félagsmiðstöðina okkar hérna:

Instagram: Setridsetbergsskoli

Facebook: facebook.com/felagsmidstodinSetrid

Snapchat: setrid17

Skólaárið 2023 - 2024 voru þessir nemendur kosnir í stjórn félagsins:

Formaður: 

  • Berglind Helga Wehmeier, 10. bekk
Varaformaður: 
  • Ása Laufey Hákonardóttir, 8. bekk
Meðstjórnendur:
  • Erik Robertssson Papazyan, 10. bekk
  • Erika Ósk Hrannarsdóttir, 10. bekk
  • Róbert Atli Tómasson, 10. bekk
  • Andrea L. Hafdal Kristinsdóttir, 9. bekk
  • Elisabeth Rós Sverrisdóttir Berger, 9. bekk

  • Heiðrún Ingólfsdóttir, 9.bekk
  • Hrannar Pétur Sigurðsson, 8. bekk

Varamenn

  • Dagur Fannar Johannesson, 9. bekk
  • Sindri Dan Vignisson, 9. bekk
  • Þorri Strand Barkason, 8. bekk

Nemendur funda á mánudögum kl 9:50

Róbert Gíslason deildarstjóri frístundasviðs skipuleggur félagsstarfið ásamt nemendum. Nemendafélagið undirbýr og skipuleggur félagslíf unglinga svo sem böll og skemmtanir, jólagleði og árshátíð

Uppfært 28.09.2023   



Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is