Vinavika og grænn dagur gegn einelti
Í þessari viku er vinavika í skólanum og eru allir bekkir að vinna með vináttuna á einhvern hátt.
Á morgun (þriðjudag) er Dagur gegn einelti og því ætla allir að mæta í einhverju grænu. Þennan dag verður lögð áhersla á fræðslu gegn einelti í öllum bekkjum skólans.
Skólinn starfar eftir Olweusaráætlun gegn einelti og okkar afstaða er að í skólanum á einelti hvorki að líðast né þrífast.
Græni liturinn er táknrænn fyrir verndarann í eineltishringnum. Verndarinn er á móti einelti og hjálpar þeim sem verður fyrir því.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla