• Ithrottamot-grunnskola-2017_sigurvegari-Setbergsskoli--1-

Setbergsskóli varð sigurvegari í árlegu íþróttamóti grunnskólanna í Hafnarfirði

12.5.2017

Skólinn hlaut 31 af 48 mögulegum. Í öðru sæti varð Víðistaðaskóli með 28 stig og Áslandsskóli í þriðja sæti með 27 stig svo mikið jafnræði er milli skóla eins og sjá má og litlu muna um úrslit.

 

Keppnisgreinar í ár voru handbolti, fótbolti, bandí og frjálsar íþróttir (langstökk, 200 m hlaup og 400m boðhlaup). Veitt eru verðlaun fyrir efsta sætið í hverri keppnisgrein og til skólans sem sigrar keppnina. Það eru 9. bekkingar grunnskólanna sem keppa og í öllum liðum er blandað saman strákum og stelpum eftir ákveðnum reglum. Við stigagjöf er fylgt ákveðnu kerfi sem tryggir jafnræði milli greina í stigagjöfinni. Auk þess er keppt í skemmtigreinum þar sem Hraunvallaskóli sigraði reiptogskeppnina og Hvaleyrarskóli stígvélasparkskeppnina í ár. Keppnin fór fram í Kaplakrika en skipst er á að halda keppnina þar og á Ásvöllum eftir árum.

 

Það eru íþróttakennarar grunnskólanna sem stýra keppninni og eiga þeir þakkir skildar fyrir stjórn hennar í ár líkt og undanfarin ár. Keppnin hefur verið haldin síðan árið 2009 og er þetta því níunda skipti sem þessi keppni hefur verið haldin með þessu fyrirkomulagi.

 

Nemendur standa sig gríðarlega vel á íþróttadeginum, hegðun er til fyrirmyndar og mikill metnaður í leikjum.

Ithrottamot-grunnskola-2017_sigurvegari-Setbergsskoli--1-Ithrottamot-grunnskola-2017_frjalsarsigurvegari-Aslandsskoli--1-


 


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is