Öskudagur
Öskudagur er skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali hjá öllum nemendum í grunnskólum Hafnarfjarðar. Kennt er frá kl. 8:10 – 11:10. Fyrstu tvo tímana verður kennsla en eftir frímínútur verður uppbrot á skólastarfinu þar sem allir nemendur og starfsfólk skólans safnast saman á sal og dansa undir stjórn nemenda í unglingadeild. Nemendur fara með kennurum sínum í stofur eftir dansinn og fá sér hádegishressingu áður en þeir halda heim eða í Krakkaberg.
Þeir nemendur sem eru í mataráskrift fá hádegishressingu í skólanum og þeir sem ekki eru í áskrift koma með sitt nesti eins og venjulega. Allir eru hvattir til að mæta í grímubúningum eða furðufötum þennan dag glöð í bragði.
Krakkaberg verður opið og þeir sem skráðir eru þar fara þangað þegar skóla lýkur.
Kveðja,
starfsfólk Setbergsskóla
- Eldri færsla
- Nýrri færsla