Að vökva lestrarblómin í sumar

14.6.2016

Að vökva lestrarblómin í sumar

Kæru foreldrar og forráðamenn !

Við viljum minna á mikilvægi þess að halda lestri barna ykkar áfram í lengri fríum. Við höfum oft orðið vitni að því að lestrarfærni nemenda fari aftur eftir lengri frí, ef þau lesa ekkert. Einkum er hætta á þessu þegar nemendur hafa glímt við lestrarerfiðleika eða eru hæg í lestri. Til að koma í veg fyrir þetta er einfalt ráð: Að börnin lesi að jafnaði ekki sjaldnar en þrisvar í viku í fríinu. Þannig viðhalda þau þeirri færni sem þegar er náð. Bóklestur eflir orðaforða og bætir málskilning og því mikilvægt að börn lesi til að „ hlaða“ inn góðan orðaforða.

Við hvetjum alla foreldra til að huga að því að lestrarblómin fái áfram næringu í sumarfríinu þannig að þau geti haldið áfram að vaxa og dafna. Notið ykkur frábæra þjónustu bókasafns Hafnarfjarðar ef ykkur skortir lesefni. Einnig er þar á dagskrá „sumarlestur“ sem við hvetjum ykkur til að nýta. Komum þeim boðum til barnanna okkar að það sé gaman að lesa skemmtilegar bækur og að lestrarstundir séu góðar samverustundir.

 

Mynd 1

 

 

Með kærri sumarkveðju og ósk um góðar lestrarstundir í sumarfríinu,

starfsfólk Setbergsskóla



Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is