Hvatningarverðlaun Foreldraráðs Hafnarfjarðar
Viljum vekja athygli á Hvatningarverðlaunum Foreldraráðs Hafnarfjarðar:
Er einhver einstaklingur eða hópur í þínu nærumhverfi sem þér þykir hafa stuðlað að auknu foreldrasamstarfi, unnið að góðum og bættum tengslum heimilis og skóla, sinnt frumkvöðlastarfi og/eða lagt sitt af mörkum við óeigingjarnt starf í þágu grunnskólabarna? Ef svo er sendu þá inn tilnefningu fyrir 14. mars á netfangið foreldrarad@hafnarfjordur.is þar sem fram kemur hvern þú tilnefnir og ástæðu tilnefningarinnar. Ekki er tekið við tilnefningum frá þeim sem sitja í stjórnum foreldrafélaga né heldur er hægt að tilnefna þá einstaklinga.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla