Eineltiskönnun Olweusar

8.11.2017

Eineltiskönnun er liður í Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun, sem Setbergsskóli tekur þátt í. Áætlunin byggir á kerfi Dan Olweusar, prófessors við Háskólann í Björgvin í Noregi.

 

Eineltiskönnunin verður lögð fyrir í 4. – 10. bekkjum á næstu dögum, 15. nóvember – 1. desember.

 

Niðurstöður könnunarinnar munu liggja fyrir í febrúar og verða kynntar nemendum og foreldrum.

Það er ósk okkar og von að nemendur og foreldrar verði virkir með okkur í aðgerðaráætlun Olweusar gegn einelti.

 

Með bestu kveðju,

Eineltis- og forvarnarteymi Setbergsskóla


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is