Bleikur dagur, föstudaginn 14. október
Kæru foreldrar og forráðamenn
Í október stendur Krabbameinsfélags Íslands fyrir fjáröflun gegn krabbameini hjá konum og er október mánuður Bleiku slaufunnar. Af því tilefni biðjum við alla í Setbergsskóla (starfsfólk og nemendur) að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 14. október eða hafa bleikan lit í fyrirrúmi þann dag. Með því sýnum við samstöðu í baráttunni.
Stöndum saman, mætum öll í bleiku á föstudaginn og tökum þátt í þessu átaki.
Bleikur október á bókasafni skólans:
- Eldri færsla
- Nýrri færsla