Bangsadagurinn 27. október
27. október ár hvert er haldið upp á alþjóðlega bangsadaginn. Í ár var engin undantekning og fengu nemendur í 1. bekk að koma með bangsa í skólann. Þeim var boðið á bangsadagskrá á bókasafninu þar sem lesin var saga fyrir nemendur og nemendur lásu sögur fyrir bangsana sína. Mikil gleði var með þennan dag eins og sjá má á myndunum hér að neðan.- Eldri færsla
- Nýrri færsla