Að vökva lestrarblómin í sumar

18.6.2018

MyndmyndKæru foreldrar og forráðamenn !

Við viljum minna á mikilvægi þess að halda lestri barna ykkar áfram í sumar.  Við höfum orðið vitni að því að lestrarfærni nemenda fari aftur eftir lengri frí, ef þau lesa ekkert. Þetta sjáum við á frammistöðu nemendaí í Lesfimimælingum í mai og svo í september.  Þetta hafa rannsóknir einnig sýnt. Til að koma í veg fyrir þetta er einfalt ráð: Að börnin lesi að jafnaði ekki sjaldnar en þrisvar í viku í fríinu.  Þannig viðhalda þau þeirri færni sem þegar er náð. Bóklestur eflir orðaforða og bætir málskilning og því mikilvægt að börn lesi til að „ hlaða“ inn góðan orðaforða.

Við hvetjum alla foreldra til að huga að því að lestrarblómin fái áfram næringu í sumarfríinu þannig að þau geti haldið áfram að vaxa og dafna. Notið ykkur frábæra þjónustu bókasafns Hafnarfjarðar ef ykkur skortir lesefni.  Einnig er þar á dagskrá „sumarlestur“ sem við hvetjum ykkur til að nýta. Komum þeim boðum til barnanna okkar að það sé gaman að lesa skemmtilegar bækur og að lestrarstundir séu góðar samverustundir.


Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is