Setbergsskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Fréttir
Skólamatur veturinn 2010 - 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 18 Ágúst 2010 14:25

Það er okkur sönn ánægja að bjóða nemendum í Setbergsskóla nú upp á skólamáltíðir.

Fjölskyldufyrirtækið Skólamatur ehf. matreiðir hollar, góðar og heimilislegar máltíðir fyrir grunnskólanemendur. Lykillinn að góðri þjónustu eru góð samskipti og við hvetjum því foreldra og nemendur að koma til okkar ábendingum og athugasemdum um skólamatinn því það er samvinnuverkefni okkar allra að börnin fái hollan og góðan mat.

Afgreiðsla skólamáltíða hefst þriðjudaginn 24. ágúst og verð fyrir hverja máltíð í áskrift er 272 kr.

Skráning fer fram á www.skolamatur.is Fyrsta áskriftartímabilið er frá skólabyrjun til og með 1. október.  Eftir það er áskriftartímabilið frá 4. hvers mánaðar til 3. næsta mánaðar.  Ekki er hægt vera í áskrift í minna en einn mánuð í senn.  Ef segja á áskrift upp þarf að gera það fyrir 27. mánaðarins á undan. Sem dæmi: áskrift sagt upp fyrir 27.september fyrir októbertímabil.  Ef áskrift er ekki sagt upp fyrir þann tíma er litið svo á að hún haldi áfram næsta tímabil á eftir.

Hægt er að greiða áskriftir með greiðslukorti eða með greiðsluseðli en einnig er hægt að greiða beint á skrifstofu Skólamatar.  Áskrift greiðist fyrirfram, en á fyrsta tímabilinu er krafa send út í byrjun september.

Matseðlar birtast á www.skolamatur.is/skolar og eru þeir skipulagðir og settir saman af næringarfræðingi og matreiðslumeisturum sem styðjast ávallt við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar.

Forráðamenn barna sem af heilsufarsástæðum þurfa að fá sérstakt fæði, t.d. vegna ofnæmis eða sjúkdóma, eru vinsamlegast beðnir um að skrifa inn upplýsingar um einkennin í athugasemdir í umsókninni.  Afgreiðsla sérfæðis getur hafist við afhendingu læknisvottorðs.

Skólamatur ehf. | Iðavöllum 1 | 230 Reykjanesbæ | Sími 420 2500 | Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 
Opnunartími skrifstofu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Mánudagur, 05 Júlí 2010 09:59

  

Skrifstofa skólans er opin mánudag til fimmtudag frá kl. 7:45 - 16:00.                         Föstudaga frá kl. 8:45  til 15:00

 

Skólastjórnendur

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 31 Ágúst 2010 08:36 )
 
Útskrift 10. bekkinga Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Mánudagur, 14 Júní 2010 14:10

Útskrift 10. Bekkinga fór fram á sal skólans við hátíðlega athöfn þann 7. júní. Boðið var upp á kaffiveitingar að athöfn lokinni. Snorri Rafn Theodórsson hlaut viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn en auk hans fengu margir aðrir viðurkenningar m.a. fyrir frábæran árangur í bóklegum og verklegum greinum, framfarir og þátttöku í félagsstarfi nemenda. Við óskum öllum útskriftarnemum til hamingju með áfangann og sendum þeim okkar bestu kveðjur og þakkir fyrir samveruna hér í skólanum.

 Útskrift og skólaslit 2010
 Styrkur til bókasafnsins frá foreldrafélaginu Veitingarnar í lokin
 Elín spilar á píanó og Gísli  flettir. Klara spilar á píanó.

Fleiri myndir frá útskriftinni koma síðar.

 

Síðast uppfært ( Mánudagur, 14 Júní 2010 15:12 )
 
Vorferðalag 5. bekkja Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 02 Júní 2010 14:28

Vorferðalag 5. bekkja.  Farið var upp að vatnsstíflunni  fyrir ofan leikskólann Hlíðarenda.  Þar var leikið sér í læknum, tjaldað, grillað og farið drullukökukeppni.  Sólin skein í heiði og voru krakkarnir ánægðir með þessa ferð.

 Vorferðalag 5. bekkja Vorferðalag 5. bekkja
 Vorferðalag 5. bekkja Vorferðalag 5. bekkja

 Fleiri myndir frá ferðinni.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 02 Júní 2010 14:57 )
 
Vorferð 3. bekkinga Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 26 Maí 2010 14:18

Vorferð 3. bekkinga var farin þriðjudaginn 18. maí. Haldið var að bænum Miðdal í Kjós og dýrin skoðuð. Þarna gat að líta öll þau helstu húsdýr sem við höfum verið að fjalla um upp á síðkastið og voru börnin vel undirbúin fyrir þessa heimsókn.

Margir héldu að kýrin með hornin væri naut en við nánari skoðun sáu þau að það gat nú ekki verið því hún var með spena og nautin voru á öðrum stað í fjósinu. Þarna gafst börnunum tækifæri á að halda á kettlingum, hvolpum, lömbum, kiðlingum og hænum. Í fjósinu gátu þau rólað sér og dottið í heyið og var það mjög vinsælt hjá þeim. Á bænum eru íslensku landnámshænurnar og var gaman að sjá þær þar sem þær eru svo litskrúðugar.

Allir héldu glaðir heim á leið eftir ánægjulega dvöl í sveitinni.

Vorferð 3. bekkingaVorferð 3. bekkinga
Vorferð 3. bekkingaVorferð 3. bekkinga

 Smellið til að fá fleiri myndir.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 26 Maí 2010 14:42 )
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 20