|
Skrifað af Administrator
|
|
Mánudagur, 20 Október 2008 14:49 |
Setbergsskóli forystuskóli í læsi og námsvitund Skólaárin 2003-2005 var í gangi átaksverkefni í Setbergskóla þar sem mikil áhersla var lögð á læsi og námsvitund. Stýrihópur sem samanstóð af kennurum og sérkennurum af öllum skólastigum leiddi starfið í tvö ár. Unnið var markvisst að því að efla lestrarkennslu við skólann, einkum með tilliti til lesskilnings og var aðallega unnið með tvær aðferðir, gagnvirkan lestur og hugtakakort. Til að auka yndislestur nemenda voru árlega lestrarsprettir og einnig var sett af stað lestrarvinaverkefni þar sem nemendur fengu lestrarvini í öðrum bekkjum til að stuðla að auknum tengslum nemenda á ólíkum aldursstigum. Kennarar voru sammála um að læsi væri mikilvæg undirstaða alls náms og ætti alltaf að vera meðal aðaláhersluþátta í starfi skólans. Ein af fyrirmyndum verkefnisins var þróunarverkefnið Læsi til framtíðar sem unnið var við Lundarskóla á Akureyri, veturinn 2001-2002 undir forystu Rósu Eggertsdóttur lektors við Háskólann á Akureyri.
Í skólastefnu Hafnarfjarðar árið 2005 kom fram það nýmæli að skólar gætu orðið forystuskólar með sérhæfingu á ákveðnu sviði. Úr varð að Setbergsskóli fékk það hlutverk að vera forystuskóli í Hafnarfirði á sviði læsis og námsvitundar. Forystuskólaverkefnið nær til fimm skólaára frá haustinu 2006 til vors 2011. Forystuskóla ber að móta sína sérstöðu og gegna ákveðnu ráðgjafarhlutverki ásamt því að hafa frumkvæði að því að miðla reynslu og þekkingu til annarra skóla. Símenntun starfsmanna forystuskóla tekur mið af sérstöðu þeirra og er stýrihópur kennara innan skólans sem leiðir þróunarstarfið. Megináherslur forystuskólaverkefnisins hafa áfram verið að kenna gagnvirkan lestur, gerð hugtakakorta, hraðlestur og auk þess hefur mikil áhersla verið lögð á yndislestur. Nóvember hefur verið sérstakur mánuður læsis og námsvitundar þar sem lestrarsprettir hafa verið í gangi, rithöfundakynningar, atburðir tengdir læsi á sal og á bókasafni og þann16. nóvember á degi íslenskrar tungu er Stóra upplestrarkeppnin sett við hátíðlega athöfn. Allir nemendur skólans eiga lestrarvini sem þeir hitta reglulega og er það verkefni í gangi allan veturinn. Það er óhætt að segja að forystuskólaverkefnið hefur vaxið og dafnað vel og er nú orðið hluti af starfi og menningu skólans.
Til að þróa og efla þá faglegu vinnu sem er til staðar í skólanum hefur verið tekið á það ráð að bæta nýjum þáttum við og höfum við leitað til Guðmundar Engilbertssonar sem hefur sérhæft sig í lestrarfræðum. Í haust hófst samstarf okkar við Guðmund með verkefnið „Orð af orði“ er hann kom og innleiddi fjölbreyttar aðferðir til að vinna með orð og hugtök. Þessar aðferðir falla vel að okkar verkefni og eru góð viðbót við þá þekkingu sem fyrir er. Fagleg þróun þessa viðfangsefnis er meðal annars byggð á niðurstöðum rannsókna þar sem fram koma nýjar leiðir til að auka færni og þróa aðferðir sem stuðla að framförum í læsi og námsvitund. Samkvæmt rannsóknum kemur fram að kennsla orða og orðaforða er veigamikill þáttur í að efla læsi og lesskilning og hefur forsagnargildi varðandi námsframvindu nemenda. Markmið forystuskólaverkefnisins Læsi og námsvitund eru:
að festa í námskrá skólans fagleg vinnubrögð sem auka lestrarfærni í víðustu merkingu þess orðs og stuðla að bættri námsvitund nemenda á markvissan hátt. að efla orðvitund, orðaforða, lesskilning og málvitund nemenda og þar með að efla áhuga þeirra á lestri. að vinna með orð og hugtök verði eðlilegur hluti af námi nemenda. að auka þekkingu kennara á aðferðum sem stuðla að bættum árangri nemenda í lestri. að styrkja hóp fagmanna innan skólans sem fylgist með nýjungum á sviði lestrarkennslu og rannsókna og er fær um að miðla þeirri þekkingu til annarra. að fræða foreldra um vinnubrögð og hugmyndafræði til að þeir geti stutt börn sín í námi.
|
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 23 Nóvember 2009 14:29 )
|