| Vorferð 3. bekkinga |
|
|
|
| Skrifað af Administrator | ||||
| Miðvikudagur, 26 Maí 2010 14:18 | ||||
|
Vorferð 3. bekkinga var farin þriðjudaginn 18. maí. Haldið var að bænum Miðdal í Kjós og dýrin skoðuð. Þarna gat að líta öll þau helstu húsdýr sem við höfum verið að fjalla um upp á síðkastið og voru börnin vel undirbúin fyrir þessa heimsókn. Margir héldu að kýrin með hornin væri naut en við nánari skoðun sáu þau að það gat nú ekki verið því hún var með spena og nautin voru á öðrum stað í fjósinu. Þarna gafst börnunum tækifæri á að halda á kettlingum, hvolpum, lömbum, kiðlingum og hænum. Í fjósinu gátu þau rólað sér og dottið í heyið og var það mjög vinsælt hjá þeim. Á bænum eru íslensku landnámshænurnar og var gaman að sjá þær þar sem þær eru svo litskrúðugar. Allir héldu glaðir heim á leið eftir ánægjulega dvöl í sveitinni.
|
||||
| Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 26 Maí 2010 14:42 ) |