Setbergsskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Um Setbergsskóla Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 15 Október 2008 13:40

Í Setbergsskóla eru um 490 nemendur í vetur. Þeir eru á aldrinum 6 - 15 ára. Bekkjardeildir eru 22. Við skólann er einnig starfrækt námsver fyrir einhverfa nemendur. Í skólanum starfa nú um 40 kennarar auk skólastjóra, aðstoðarskólastjóra og deildastjóra. Hér starfa auk þess skólaliðar, stuðningsfulltrúar, matráðar, náms- og félagsráðgjafar, sálfræðingur, skólaritari, hjúkrunarfræðingur, starfsmenn heilsdagsskóla og starfsmenn við ræstingu auk umsjónarmanns skólahúsnæðis.

Skrifstofa skólans er opin frá 7:45 - 16:00 nema á föstudögum til kl 15:00. Á skrifstofu skal tilkynna forföll nemenda svo fljótt sem kostur er og síðan á hverjum degi sem barnið er veikt. Umsjónarkennari, skólastjóri eða aðstoðarskólastjóri gefa nemendum leyfi frá skóla ef ástæða er til.

Merki skólans er eftir Sigurð Einarsson Sólbergi 2. Rendurnar þrjár tákna setbergið sem er grunnur barnanna. Þau eru á mismunandi aldri, en sækja öll upp á við í þjóðfélaginu.

Síðast uppfært ( Mánudagur, 21 September 2009 18:23 )