|
Próftöflur: unglingadeild |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Þriðjudagur, 05 Janúar 2010 15:08 |
Ágætu nemendur og foreldrar 8., 9. og 10. bekkjaDagana 11. – 22. janúar verða nemendur prófaðir samkvæmt próftöflu hér að neðan. Athugið að mánudaginn 18. janúar mæta nemendur aðeins til prófs. Hina dagana verður kennt samkvæmt stundaskrá áður en próf hefst og að prófi loknu . Prófin eru tekin í heimastofum. Próftafla - 8. bekkur | Dagsetning: | Tími | Námsgrein: | | 11. jan. | Mánud. 11:05-12:25 | Enska | | 13. jan. | Miðvikud. 11:05-12:25 | Danska | | 18. jan. | Mánud. 8:00-10:30 | Prófdagur - Íslenska | | 21. jan. | Fimmtud. 8:00- 10:15 | Stærðfræði. |
Próftafla - 9. bekkur| Dagsetning: | Tími: | Námsgrein: | | 11. jan. | Mánud. 8:00 – 9:20 | Ísl/Gíslasaga. | | 12. jan. | Þriðjud. 10:15-12:25 | Enska | | 15. jan. | Föstud 11:05 – 12:25 | Danska | | 18. jan. | Mánud. 10:30- 12:30 | Prófdagur - Íslenska | | 20. jan. | Miðvikud.. 8:00 - 10:15 | Stærðfræði |
Próftafla 10. bekkur| Dagsetning: | Tími: | Námsgrein: | | 13. jan. | Miðvikd. 9:35 – 11:45 | Enska | | 14. jan. | Fimmtud. 11:05- 12:15 | Danska | | 18. jan. | Mánud. 8:00 – 10:30 | Prófdagur - Íslenska | | 20. jan. | Miðvikud. 8:00 – 10:55 | Stærðfræði | Nemendur athugið að mæta tímanlega í próf og hafa skriffæri meðferðis. Munið eftir vasareikni, gráðuboga og hringfara fyrir stærðfræðiprófið Gangi ykkur vel ! Deildarstjóri og kennarar. |
|
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 07 Janúar 2010 08:11 )
|
|
|
Hugum að fjölskyldunni um hátíðirnar |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Þriðjudagur, 29 Desember 2009 05:58 |
|
Ágætu forráðamenn unglinga í Setbergsskólahverfi Hugum að fjölskyldunni um hátíðirnarNú þegar jól og áramót nálgast er gott að minna á mikilvægi samverustunda fjölskyldna um hátíðirnar. Samverustundir fjölskyldna eru dýrmætar og hvetja unga fólkið til heilbrigðara lífernis. Auk þess sýna íslenskar kannanir að börn og ungmenni vilja verja meiri tíma með foreldrum sínum en þau gera. Verum samstíga um að gera gamlárskvöld að hátíðarkvöldi þar sem öll fjölskyldan skemmtir sér vel saman. Með því sjáum við til þess að börnin okkar eigi góðar og jákvæðar minningar frá þessum tímamótum. Mikilvægt er að virða útivistarreglur, standa saman gegn eftirlitslausum unglingapartýum og að vera í góðu sambandi við foreldra annarra barna og ungmenna. Þá er ágætt að minna á rannsóknir sem sýna að þeir foreldrar sem útvega börnum sínum áfengi auka á áfengisneyslu þeirra sem getur svo ýtt undir að vinir barnanna drekki einng áfengi. Með samstilltu átaki undanfarin ár hafa foreldrar í Hafnarfirði séð til þess að gera aðventu, jól og áramót að friðsælli fjölskylduhátíð. Tryggjum að svo verði áfram. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Hér má sjá bréfið í heild sinni. |
|
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 05 Janúar 2010 12:52 )
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Sunnudagur, 20 Desember 2009 01:13 |
Gleðilega jólahátíð Starfsfólk Setbergsskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og þakkar fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu þann 5. janúar 2010.María Pálmadóttir, skólastjóri Hér eru nokkrar myndir frá jólaskemmtunum okkar. 
|
|
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 20 Desember 2009 01:20 )
|
|
Nýr Setbergsannáll er kominn út |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 17 Desember 2009 11:43 |
Nýr Setbergsannáll er nú kominn út. Meðal efnis í blaðinu eru umfjallanir um jólaskemmtanir, samræmd próf, mat á skólastarfi o.m.fl. Annállinn verður sendur heim en þeir sem eru óþreyjufullir og geta ekki beðið eftir að fá hann í tölvupósti geta skoðað hann hér. |
|
Skrifað af Hrönn Bergþórsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 16 Desember 2009 11:12 |
Fimmtudagurinn 17. desemberKlukkan 19:30: jólaskemmtun unglingadeildar á sal skólans.
Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir á skemmtunina og að þiggja kaffisopa á eftir í stofu 112.
Klukkan 20:30-23:00: jólaball unglingadeildar.
Föstudagurinn 18. desemberKlukkan 9:00 - 11:00: jólaskemmtun hjá 2. og 4. bekk
Klukkan 11:00 - 13:00: jólaskemmtun hjá 1. og 3. bekk
Klukkan 13:00 - 15:00: jólaskemmtun hjá 5. 6. og 7. bekk
18. desember er síðasti skóladagur fyrir jólaleyfi. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þann 5. janúar 2010.
Starfsfólk Setbergsskóla óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Við þökkum fyrir góðar samverustundir á árinu.
|
|
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 16 Desember 2009 23:05 )
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 31 |