|
Sprengidagur og öskudagur |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 10 Febrúar 2010 13:06 |
Sprengidagur er skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali hjá nemendum 1. – 4. bekkja í Setbergsskóla Á sprengidag ætlum við að gera okkur dagamun og undirbúa okkur fyrir öskudag. Það gerum við m.a. með því að búa til öskupoka og grímur. Þetta munum við flétta inní kennsluna þennan dag. Skóladagurinn hefst samkvæmt stundatöflum barnanna og lýkur kl. 12:20. Matur eins og venjulega hjá þeim sem eru í mataráskrift, hinir taka með sér nesti.
Öskudagur er einnig skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali hjá öllum nemendum í Setbergsskóla Kennsla á yngsta stigi frá kl. 8:20 – 11.00 og í unglingadeild og miðdeild frá 8.00 – 11.00.
Matur: safi og samlokur í lok dags fyrir nemendur sem eru í mataráskrift, aðrir eru með sitt nesti eins og venjulega.
Allir hvattir til að mæta í grímubúningum, nemendur og starfsfólk.
Léttleikinn verður í fyrirrúmi þennan dag.
Gæsla verður í boði báða dagana eins og hér segir:
- Þeir sem skráðir eru í gæslu geta verið frá skólalokum sinn venjulega tíma.
- Þeir sem ekki eru skráðir í gæslu geta verið hér hjá okkur þar til viðveru samkvæmt stundaskrá lýkur.
Látið Nellý forstöðukonu heilsdagsskóla vita hver gæsluþörf ykkar er þessa daga á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. í síðasta lagi föstudaginn 12. febrúar
Bestu kveðjur, skólastjórn Setbergsskóla
|
|
|
Hugsaðu áður en þú sendir |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 13:01 |
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni "Hugsaðu áður en þú sendir". Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 14:30-16:30.Til að skoða dagskrá ráðstefnunnar nánar er hægt að smella á myndina hér fyrir neðan. 
|
|
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 13:14 )
|
|
5. bekkir á Víkingaslóðum |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 07:49 |
Vel var tekið á móti 5. bekkjum í Fjörukráinni í janúar. Þar máttu nemendur skoða sig um og sjá dót sem minnir á víkingatímabilið. Ferð þessi var farin í tengslum við kennsluefni um Leif heppna Eiríksson landkönnuð. |
|
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 13:21 )
|
|
Opid hús í framhaldsskólum |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 03 Febrúar 2010 13:34 |
Framhaldsskólarnir opna dyrnar fyrir nemendum úr 10. bekk fram á vorið. Nú er hægt að nálgast dagskrána hér á vefnum undir liðnum Stoðkerfi - Framhaldsskólar opid hús. Einnig er hægt að smella hér. |
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 22 Janúar 2010 11:44 |
|
Framhaldsskólakynning í Flensborg Þriðjudaginn 26. Janúar kl. 17:00-19:00 verður kynning á námsframboði þrettán framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Kynningin fer fram í aðalsal Flensborgarskóla og er fyrir nemendur í 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og foreldra þeirra. Hver framhaldsskóli verður með kynningarbás þar sem námsframboð og inntökuskilyrði verða kynnt. Þetta er kjörið tækifæri fyrir 10. bekkinga og foreldra þeirra til að kynna sér hvað framhaldsskólarnir hafa upp á að bjóða. Námsráðgjafar grunnskólanna í Hafnarfirði Námsráðgjafar Flensborgarskóla Þeir framhaldsskólar sem verða með kynningarbás eru: Borgarholtsskóli Fjölbrautarskólinn í Breiðholti Fjölbrautarskólinn við Ármúla Fjölbrautarskólinn í Garðabæ Flensborgarskólinn í Hafnarfirði Hraðbraut Iðnskólinn í Hafnarfirði Kvennaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Kópavogi Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð Tækniskólinn Verslunarskóli Íslands |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 9 af 31 |