|
Skólaþing í Setbergsskóla |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Þriðjudagur, 02 Mars 2010 15:22 |
|
Föstudaginn 26. febrúar var haldið skólaþing í Setbergsskóla. Hugmyndin að skólaþingi kviknaði síðastliðið haust þegar skólaráð skólans var að móta starfsáætlun sína fyrir veturinn en eitt af verkefnum skólaráðs er að halda opinn fund með þátttöku allra sem að skólasamfélaginu koma. Einnig ber skólaráði að fjalla um starfsáætlun og stefnu skólans og eftir að hugmyndin um skólaþing fór að þróast þá var ákveðið að taka út þá þætti sem sérstaklega snúa að samskiptum heimila og skóla og skoða sýnileika þeirra í starfinu, hvað væri gert vel og hvað væri hægt að gera betur. Til skólaþingsins var svo boðað starfsfólk skólans (það var skipulagsdagur þennan dag), stjórn foreldrafélags og bekkjarfulltrúar auk annarra foreldra sem áhuga höfðu á því að mæta. Alls tóku tæplega 70 manns þátt í þinginu. Dagskrá skólaþings var: Kl. 8:00 – 8:20: Tilgangur og stutt kynning, farið yfir þá þætti sem til skoðunar voru. Kl. 8:20 – 9:00: Hópvinna – starfsmenn skólans og foreldrar unnu saman í hópum. Kl. 9:00 – 9:30: Samantekt og hópaskil.
Þingfulltrúum var skipt í sex hópa og hver og einn hópur fékk eitt viðfangsefni. Viðfangsefni hópanna voru þessi: Samkvæmt lögum um grunnskóla skal starfrækja foreldrafélag. Jafnan skal viðhafa markvisst upplýsingaflæði milli heimila og skóla: Halda skal úti virkri heimasíðu sem uppfærð er reglulega og viðhafa öflugt upplýsingaflæði innan skólans og út á við. Foreldrum skal boðið upp á fræðslu. Upplýsa skal foreldra um stefnu skólans og leiðarljós og kynna fyrir þeim bekkja- og skólareglur. Bjóða skal upp á góða aðstöðu til félagsstarfa í samstarfi skóla og Setursins (félagsmiðstöð skólans), með öflugu félagslífi í skólanum og skólaferðalögum og vettvangsferðum. Áhersla skal lögð á að börnunum líði vel í skólanum.
Hver hópur fékk 40 mínútur til að fjalla um sitt viðfangsefni og notaði SVÓT – greiningu til að greina viðfangsefni sitt. Niðurstöður Skólaþingsins verða dregnar saman og kynntar foreldrum. Sömuleiðis verður úrbótaáætlun gerð því margar gagnlegar ábendingar komu fram um skólastarfið og umræður voru uppbyggilegar og góðar. Fleiri myndir frá skólaþingi. |
|
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 02 Mars 2010 15:34 )
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 24 Febrúar 2010 14:05 |
Nú eru komnar fullt af myndum frá öskudeginum á síðuna okkar. Hér eru tvö sýnishorn. Ef þið smellið á myndirnar er hægt að sjá fleiri. |
|
100 daga hátíð hjá 1. bekk |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 18 Febrúar 2010 08:26 |
|
Þann 3. febrúar s.l. voru börnin í 1. bekk búin að vera 100 daga í skólanum. Þá var haldin hátíð bæði í salnum og í stofunum. Allir komu með niðurskorna ávexti og grænmeti og settu á sameiginlegt hlaðborð. Allir töldu 100 cherioos og bjuggu til hálsfestar. Klippt voru út 10 x10 = 100 andlit og límd á blöð. Fleiri myndir frá 100 daga hátíðinni má sjá hér |
|
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 18 Febrúar 2010 13:26 )
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 08:56 |
Flensborgarskólinn heimsótti okkur nú nýverið og kynnti skólann fyrir nemendum í 10. bekk. Í kynningarhóp Flensborgar mátti sjá gamla og góða nemendur frá Setbergsskóla. |
|
Síðast uppfært ( Föstudagur, 12 Febrúar 2010 09:07 )
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 08:50 |
|
Á þriðjudag og fimmtudag fór 9. og 10. bekkur í myndmenntarvali í Hafnarborg. Þar skoðuðum við Endalok, sýningu Ragnars Kjartanssonar, sem var framlag Íslands til Feneyjartvíæringsins 2009. Í Sverrissal sáum við einnig hið skemmtilega verk Ljósbrot eftir Fjólu Ingþórsdóttur en í því byggir listamaðurinn eins konar völundarhús úr örfínum þráðum inn í sýningarrýmið. Óhætt er að segja að nemendur hafi verið sér og skólanum til mikils sóma í þessum ferðum. Þau sýndu mikinn áhuga, hlustuðu mjög vel og tóku lifandi þátt í leiðsögninni um Hafnarborg og hlutu fyrir það sérstakt lof leiðsögumanns.
|
|
Síðast uppfært ( Föstudagur, 12 Febrúar 2010 08:55 )
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 8 af 31 |