Setbergsskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Setbergsskóli
Páskabingó Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Fimmtudagur, 18 Mars 2010 13:03
Páskabingó foreldrafélagsins
 
Fréttir af spurningaliðinu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Þriðjudagur, 16 Mars 2010 15:32

Þeir Birgir Örn Höskuldsson, Úlfur Andrason og Brynjar Geir Sigurðsson hafa farið hamförum sem spurningalið skólans síðastliðnar vikur. Í gærkvöldi lögðu þeir að velli lið Öldutúnsskóla með miklum yfirburðum 30-12. Þessi frækni sigur tryggði þeim þátttöku í úrslitum keppninnar. Sér til halds og trausts höfðu þeir tryggasta stuðningsmannalið norðan Alpafjalla. Þema kvöldsins var blátt og tóku margir það afar alvarlega.

Úlfur, Birgir og Brynjar
Stuðningsliðið
Jón Bjarni og Þórður
 
Leifur Eiríksson og Ameríkufundurinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 10 Mars 2010 13:37

5. bekkir héldu kynningu fyrir foreldra á námsefninu um víkinginn Leif Eiríksson og Ameríkufund hans 9. febrúar s.l. Allir komu með kökur og meðlæti í morgunsárið og skemmtu sér vel.

Leifur Eiríksson og AmeríkufundurinnLeifur Eiríksson og Ameríkufundurinn

Fleiri myndir frá heimsókninni

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 10 Mars 2010 14:14 )
 
Upplestrarkeppnin 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Þriðjudagur, 09 Mars 2010 16:14

Upplestrarkeppni Setbergsskóla, sem 7. bekkingar taka þátt í, verður haldin á sal skólans fimmtudaginn 11. mars 2010 kl. 8.10.
Í ár eru það 10 nemendur sem taka þátt í keppninni og eru þeir fulltrúar síns bekkjar.
Dómnefnd velur tvo nemendur sem koma fram fyrir hönd skólans á lokahátíð upplestrarkeppninnar sem haldin verður í Hafnarborg þriðjudaginn 23. mars næstkomandi.

 
Mi Familia Española Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Mánudagur, 08 Mars 2010 14:01

Nemendur í báðum hópum í spænsku drógu sér  „spænskar“ fjölskyldur og áttu að vinna verkefni í tengslum við þær. Verkefnin voru  ólík eftir hópum en sameiginlegt markmið þeirra var að nemendur kynntust spænskum nöfnum og eftirnöfnum og æfðu sig í að lýsa manneskjum.

Myndir frá spænskukennslu

Myndir frá spænskukennslu

Síðast uppfært ( Mánudagur, 08 Mars 2010 14:05 )
 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 7 af 31