Setbergsskóli

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
Setbergsskóli
Gaman saman Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Mánudagur, 26 Apríl 2010 14:55

Dagskrá fyrir nemendur:   


Alla þessa viku verður fjölbreytt dagskrá hér hjá okkur undir yfirskriftinni „Gaman saman“. Dagskráin er ætluð 5. – 10. bekk. Sett hefur verið saman frábær dagskrá og margir leggja hönd á plóginn, starfsmenn okkar, fulltrúar foreldra og fulltrúar annarra stofnana hér í bæ. Dagskráin er sérlega glæsileg, uppbyggileg og innihaldsrík. Við hlökkum til að njóta þess sem boðið verður upp á.
 
Gleðilegt sumar! Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 21 Apríl 2010 14:24

Gleðilegt sumar!

Sól með sólgleraugu

Síðast uppfært ( Laugardagur, 24 Apríl 2010 09:10 )
 
Árshátíð Setbergsskóla 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Mánudagur, 19 Apríl 2010 15:07

Ein glæsilegasta árshátíð sem haldin hefur verið í Setbergsskóla fór fram þann 14. apríl síðastliðinn. Nemendur höfðu unnið dag og nótt við að skreyta skólann og var afraksturinn glæsilegur í alla staði.

Fljótlega upp úr 19:00 fóru krakkarnir að streyma í sínu fínasta pússi. Sumir mættu þó með meiri viðhöfn en aðrir.  Þema árshátíðarinnar var svart, hvít og rautt, þess að auki mættu nokkrir með grímur í anda Óperudraugsins. 

Sveit manna frá Skútunni sá um matinn handa hópnum og var almenn ánægja með þeirra störf. Að mat loknum hófust venjuleg árshátíðarstörf.  Sveinn Waage uppistandari kom og skemmti og  var mikið hlegið. Síðan voru tilkynnt úrslit ýmissa kosninga. Að lokum mætti DJ Hafsteinn á svæðið og hélt uppi fjörinu til 23:30.

 Njáll mætir með viðhöfn Þröngt mega sáttir sitja
 Maturinn var frábær eins og venjulega ... svo var dansað uppi á dekki

Hér má sjá fleiri myndir frá árshátíðinni.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 21 Apríl 2010 14:22 )
 
Spurningakeppni ÍTH og grunnskólanna Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Mánudagur, 19 Apríl 2010 14:54

Setbergsskóli sigraði

Mánudaginn 12. apríl sigraði Setbergsskóli lið Álftanesskóla í úrslitaviðureign Spurningakeppni ÍTH og grunnskólanna, Veistu svarið. Keppnin fór fram í hátíðarsal Flensborgarskólans líkt og fyrir ári síðan og var salurinn þétt setinn af fjölmörgum stuðningsmönnum beggja liða sem mættu til að hvetja sitt lið. Setbergsskóli náði fljótlega forskoti og leiddi keppnina með 5 stigum eftir hraðaspurningar en í stöðunni 25-17 átti Álftanesskóli ótrúlegan endasprett, jafnaði 25-25 og tryggði sér bráðabana. Þar kom þekking Setbergsmanna á málefnum Madonnu sér vel en viðureignin fór 27-26 eftir dramatískar lokamínútur.

Bæði lið stóðu sig með mikilli prýði og var alveg ótrúlegt að sjá hversu flóknar og erfiðar spurningar liðinunum tókst að leysa á meðan fullorðna fólkið út í sal klóraði sér í höfðinu yfir sömu spurningum. Sú nýjung átti sér stað í úrslitakeppninni að báðir skólar buðu upp á stórskemmtileg skemmtiatriði til að brjóta upp keppnina. Hópur söngdíva úr Álftanesskóla undir stjórn hafnfirðingsins Guðnýjar Árnýjar Karlsdóttur sungu Bítlaslagarann Let it be og klassískt tónverk var spilað af nemenda úr Setbergsskóla af mikilli list.

Bæði lið fengu bókaverðlaun í sinn hlut fyrir árangur sinn í keppninni og það kom svo í hlut Margrétar Gauju Magnúsdóttur að afhenda Setbergspiltum Vitann, verðlaunagrip keppninnar.

 

Sigurvegarar í Spurningakeppni grunnskólanna
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 21 Apríl 2010 14:21 )
 
Hjólreiðar og notkun hjólabretta Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Fimmtudagur, 18 Mars 2010 13:14

Hjólreiðar og notkun hjólabretta er ekki leyfð í frímínútum.

Af öryggisástæðum er þess óskað að nemendur í sex og sjö ára bekkjum komi ekki á hjólum í skólann. Einnig að nemendur annarra bekkja komi ekki á hjólum frá nóvemberbyrjun til febrúarloka. Við minnum á að samkvæmt lögum er börnum á hjólum skylt að nota öryggishjálma og að rík þörf er fyrir notkun endurskinsmerkja í skammdeginu og eins þurfa hjólin að vera með ljósum og glitaugum og öðrum þeim öryggisbúnaði sem gerir þau lögleg.

Hjólreiðar til og frá skóla eru alfarið á ábyrgð foreldra.

Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 18 Mars 2010 13:18 )
 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 31