|
Skrifað af Administrator
|
|
Mánudagur, 10 Maí 2010 14:25 |
Vordagar hjá 8. bekk 2010 Kæru nemendur og forráðamenn!
Nú líður að lokum þessa skólaárs. Síðustu skóladagarnir í vor verða sem hér segir:
| Fimmtud. | 20. maí | Danska
| 10:30-12:30 | Föstud.
| 21. maí | Íslenska
| 10:30-12:30 | | Mánud. | 24. maí
| | Annar í hvítasunnu | | Þriðjud. | 25. maí | | Skipulagsdagur | | Miðvikud. | 26. maí
| Stærðfræði
| kl 10:30-12:30
| Fimmtud.
| 27. maí
| Enska | kl 8:00-10:15/ skóli skv. stundaskrá | Föstud.
| 28. maí
| | Skóli- bókaskil, frágangur ofl. |
Föstudaginn 28. maí : Nemendur skila námsbókum við bókageymslu og hljóðbókum inn á bókasafn. Mánud.
| 31. maí
| Mannúðarverkefni | Þriðjud.
| 1. júní
| Mannúðarverkefni | | Miðvikud. | 2. júní
| Útivist | Fimmtud.
| 3. júní | Íþróttadagur | Föstud.
| 4. júní | Útivera 9-12 | | Mánud. | 7. júní | Skólaslit |
Gangi ykkur vel! Kennarar og skólastjórnendur Setbergsskóla |
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 10 Maí 2010 14:57 )
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Sunnudagur, 09 Maí 2010 17:29 |
KAFFIHÚSADAGURINN(fjáröflun í ferðasjóð barnanna) Ágætu foreldrar og forráðamenn!
Þriðjudaginn 11. maí n.k. kl. 17:30–19:30 í stóra sal Setbergsskóla ætla nemendur að gera sér glaðan dag með okkur sem við köllum „KAFFIHÚSADAGURINN“. Dagurinn er hugsaður sem fjáröflun sem fer í ferðasjóð sem öll börn í Setbergsskóla njóta góðs af. Sett verða upp borð og búnaður sem skapar alvöru kaffihúsastemningu. Til að gera kaffihúsadaginn okkar sem eftirminnilegastan munum við að hafa skólann opinn gestum og gangandi með ýmsar skemmtanir og uppákomur sem krakkarnir okkar standa fyrir, má þar telja:
- Bjarki og Edda úr 9. bekk munu syngja nokkur lög
- Darri í 9. bekk og Elín úr 10. bekk spila á píanó
- Krakkar úr 4. bekk flytja tónlistaratriðið „Lagið um eldgosið“ eftir Lísu í 4. bekk
- Elsa í 5. bekk syngur
- Eyrún í 5. bekk og Guðrún í 6. bekk spila saman á píanó
- Auk þess mun kórinn okkar syngja nokkur lög
Krakkar úr 9. bekk munu þjóna til borðs taka við og afgreiða pantanir. Þið kæru gestir munið eingöngu þurfa að slaka á og njóta skemmtiatriða og veitinga sem verða seldar á vægu verði.
Hlökkum til að sjá ykkur og munið allir fjölskyldumeðlimir eru velkomnir, þetta er fjölskylduskemmtun. Með kaffihúsakveðju, stjórn foreldrafélagsins, starfsmenn og nemendur Setbergsskóla.
|
|
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 09 Maí 2010 17:43 )
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 06 Maí 2010 14:34 |
|
Íþróttamót 9. Bekkja allra grunnskóla Hafnarfjarðar fór fram upp á Ásvöllum í gær, 5.5.2010. Íþróttakennarar hér í bæ höfðu skipulagt þennan dag sem gekk mjög vel.
Nemendur Setbergsskóla gengu fylktu liði upp á Asvelli og tóku þátt í víðavangshlaupi, handbolta, fótbolta, skotbolta og sundi. Allir okkar nemendur stóðu sig með sóma, einnig stuðningsmannaliðið sem lét vel í sér heyra og studdi sitt fólk. Setbergsskóli lenti í 2. sæti, sem er frábær árangur en Víðistaðaskóli vann keppnina þetta árið.
Þótti keppnin takast mjög vel og ljóst er að um árlegan viðburð er að ræða. |
|
Skemmtun hjá 4. og 7. bekk |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 14:24 |
|
Fjórðu og sjöundu bekkir stóðu fyrir skemmtunum á sal nú nýverið. Fjórði bekkur var með sjávarþema og krakkarnir sungu og léku sjómannalög sem þau höfðu æft af kappi með tónmenntakennara og umsjónarkennurum. Það var hin besta skemmtun og sérlega gaman að sjá hvað krakkarnir kunnu marga texta og höfðu æft sig vel. Áhorfendur voru einnig til fyrirmyndar, hlustuðu af athygli og voru sérlega prúðir. Sjöundu bekkir skemmtu áhorfendum sínum með fjölbreyttri dagskrá, spurningakeppni, kappáti, leik og söng. Frábær skemmtun sem tókst í alla staði vel. Til hamingju með vel heppnaðar skemmtanir! Fleiri myndir frá skemmtuninni. |
|
Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 28 Apríl 2010 14:53 )
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Mánudagur, 26 Apríl 2010 14:56 |
|
|
|
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 27 Apríl 2010 16:56 )
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 5 af 31 |