Útlán skólahúsnæðis

Útlán skólahúsnæðis til bekkjarfulltúa

Hvernig kem ég boðum til annarra foreldra?

  • Hægt er að senda póst til allra foreldra barna í gegnum Mentor.
  • Vanti ykkur lykilorð getið þið sent póst á setbergsskoli@setbergsskoli.is og þið fáið nýtt lykilorð sent til baka.

Hvernig kem ég boðum til annarra bekkjarfulltrúa?

  • Listi yfir bekkjarfulltrúa og netföng þeirra verður á heimasíðu skólans undir tenglinum foreldrafélag.

Hvað geri ég ef ég ætla að nýta húsnæði skólans fyrir skemmtun?

  • Sendir póst til skrifstofustjóra hallab@setbergsskoli.is og húsumsjónarmanns hafsteinn@hafnarfjordur.is sem halda utan um skráningar á pöntunum á húsnæði skólans.
  • Mikilvægt er að taka húsnæði frá tímanlega þar sem oft þarf að gera ráðstafanir vegna þrifa og til að forðast árekstra.
  • Húsumsjónarmaður opnar og lokar húsnæði eftir samkomulagi við þá sem halda skemmtunina.
  • Sá sem óskar eftir að fá húsnæðið að láni ber ábyrgð á að skila því í góðu ásigkomulagi að lokinni notkun og gæta þess að gluggar og hurðir séu lokaðar. 

Setbergsskóli | Hlíðarbergi 2, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 - 1011 | Netfang setbergsskoli@setbergsskoli.is